Allir geta tekið þátt í Alþjóðlegri athafnaviku á Íslandi, hvort sem er með því að skipuleggja viðburð fyrir aðra eða taka þátt í þeim fjölmörgu viðburðum sem haldnir verða um land allt.
Við hvetjum þig eða þitt fyrirtæki, skóla, stofnun, félag eða hóp eindregið til að skipuleggja viðburð innan Athafnavikunnar. Þannig sýnir þú athafnasemi í verki, sýnir gott fordæmi og hvetur aðra og lætur gott af þér leiða. Athafnasemi er lykillinn að endurreisn Íslands. Nánari upplýsingar.
Við hvetjum alla þjóðina til að láta hendur standa fram úr ermum og taka þátt í að minnsta kosti einum viðburði í Alþjóðlegu athafnavikunni. Einnig hvetjum við fólk til að koma stórum sem smáum verkefnum í framkvæmd. Athafnasemi er lausn flestra vandamála og skapar ný tækfæri. Nánari upplýsingar.
Við hvetjum þig til að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna og ef við getum aðstoðað þig á einhvern hátt við að taka þátt í vikunni. Hafðu samband.