Á einni viku munu milljónir manna um allan heim taka þátt í ört stækkandi hreyfingu fólks og frumkvöðla sem vilja knýja fram jákvæðar breytingar á sínu eigin lífi og samfélagi. Meira en 100 þjóðir í sex heimsálfum sameinast í Alþjóðlegri athafnaviku með það að markmiði að hvetja fólk til að tileinka sér nýsköpun, athafnasemi og frumkvöðlahugsun. Lausn vandamála felst í athafnasemi og því ætlum við að virkja hugmyndir okkar og láta verkin tala í Alþjóðlegri athafnaviku.
Alþjóðleg athafnavika fer fram dagana 16. – 22. nóvember 2009 og tengir saman fólk og hugmyndir um allan heim, þvert á öll landamæri og menningarstrauma. Boðið verður upp á fjölda viðburða sem hannaðir eru til þess að kynna fólki leiðir til að nýta hæfileika sína til nýsköpunar, athafnasemi og frumkvöðlahugsunar. Nemendur, frumkvöðlar, stjórnendur, starfsmenn fyrirtækja, stjórnmálaleiðtogar og margir fleiri munu taka þátt í fjölda viðburða af öllum stærðum og gerðum á meðan Athafnaviku stendur.
Með þátttöku í Athafnaviku mun athafnafólk læra leiðir til að afla sér þekkingar, virkja hæfileika sína og afla sér þeirra sambanda sem nauðsynleg eru til að koma á fót sjálfbærum rekstri með jákvæð áhrif á líf þeirra, fjölskyldu og samfélag.