Fréttir » Framkvæmdabók Athafnavikunnar
0 Comments
- Add comment |
Back to Heim Written on 15-Nov-2009 by totlaNú fer Athafnavikan alveg að hefjast en einn af viðburðum hennar er Framkvæmdabókin sem Actavis styrkir. Þessari litlu bók verður dreift til þátttakenda viðburða vikunnar en í henni eru hvítar auðar síður sem munu vonandi fyllast af hugmyndum og teikningum tilvonandi eigenda. Bókin er handhæg framkvæmda- og hugmyndabók sem hægt er að nota til að skrifa niður hugmyndir, minnisatriði, punkta frá fundum og fyrirlestrum, upplýsingar um nýja tengiliði og hvað eina sem þér dettur í hug! Framkvæmdabókin er framleidd af Odda sem er bakhjarl Athafnavikunnar.